VELKOMIN Á
Gistihúsið Egilsstöðum
Gistihúsið – Lake Hotel Egilsstadir
Gistihúsið – Lake Hotel Egilsstadir er rómað, fjölskyldurekið hótel sem hvílir á gömlum merg íslenskrar bændamenningar. Hótelið mætir ströngustu nútímakröfum um gæði, glæsileik og aðbúnað, um leið og það varðveitir uppruna sinn sem nær aftur til ársins 1903 og ljær því einstakan blæ. Gestir geta valið um vel búin og rómantísk antík-herbergi í eldri hluta hótelsins eða nútímaleg herbergi yngri byggingar.
Eldhúsið – Restaurant
Veitingastaður hótelsins, Eldhúsið – Restaurant, hefur getið sér orðs og eru metnaður og alúð þar allsráðandi. Matargerðin er sprottin úr traustum hefðum, en hráefnin gjarnan sett í nýtt og framsækið samhengi. Hráefni er ætíð fyrsta flokks, að mestu íslenskt, gjarnan lífrænt og oft fengið úr næsta nágrenni, enda er leitast við að nýta og kynna afurðir úr héraði. Þriggja rétta kvöldverðurinn Beint frá býli er stolt Eldhússins.
Baðhúsið – Spa
Glæsileg heilsulind, Baðhúsið – Spa, er á jarðhæð hótelsins, með heitri smálaug, sánu, köldum potti og hvíldarsvæði innan og utan dyra. Einkar fallegt útsýni er yfir Lagarfljót frá heilsulindinni. Lögð er áhersla á rólegt, slakandi og endurnærandi umhverfi.
Hjarta Austurlands
Gistihúsið – Lake Hotel Egilsstadir stendur á bökkum hins mikla og fagra Lagarfljóts við Egilsstaði og er þannig miðsvæðis á Austurlandi. Hótelið liggur vel við samgöngum í lofti, á láði og legi og er t.d. aðeins klukkustundarlöng ferð flugleiðis milli Reykjavíkur og Egilsstaðaflugvallar, en hótelið er þar skammt frá. Það er einnig upplagt sem miðpunktur ferða um austurhluta Íslands, allt frá hálendi til strandar. Fjölbreytt afþreying er í boði á svæðinu.
Gistihúsið – Lake Hotel Egilsstadir er svipmikið hótel með öllum nútímaþægindum en um leið er það hlýlegt og umvefjandi. Hótelið er innan vébanda félagsins Ferðaþjónustu bænda. Starfsfólk er um 40 manns; einvalalið sem hefur vellíðan og ánægju gestanna í fyrirrúmi.
Verið velkomin að njóta gestristni og góðs aðbúnaðar
í fögru umhverfi við Lagarfljót.